Seinni hluti helgarinnar
Já við vöknuðum ferskar eftir ágætist skemmtun með sjúkraþjálfunarnemunum hérna. Þurftum líka að vera ferskar því á planinu var að kíkja í break dans tíma. Skokkuðum því upp í stúdíóið. Þar hittum við kennarann okkar, man ekki hvað hann heitir en man að hann er frá Úkraínu. Hann kenndi okkur ótrúlega mikið á 90 mín. Erum komnar með ágætis rútínu meira að segja. Eftir tímann vorum við algerlega búnar á því og í dag er ég með mestu harðsperrur sem ég hef nokkru sinni fundið í serratus ant.
Um kvöldið horfðum við á DVD, Nóa albinóa, okkur fannst svo gaman að finna íslenska mynd á kvikmyndaleigunni handan við hornið. Fundum fyrir vægu þunglyndi eftir að hafa horft á hana og ákváðum því að horfa á loka mínúturnar af Love actually sem var til sýnis í sjónvarpinu. Héldum að það mundi hressa okkur við, en nei, myndin snýst fyrst og fremst um jólin og sambönd, ekki öll ganga upp. Svo endar hún á því að sýna frá því þegar allir hitta ástvini sína á flugvellinum og fallast í faðma, svei.
Vorum að "whiping our asses out" í skvassi, er að reyna að læra á lingóið hérna út ;)
Höfum ekki verið duglegar að taka myndir en hér kemur smá samtíningur:

Ein af tveimur brúum sem hægt er að aka yfir til að komast norður til Dartmouth.

Ég að borða síðustu muffinsina í mötuneyti Rehab center, það verða ekki fleiri sem fara inn fyrir munninn áður en við förum heim.

Elín að borða síðustu hafra/döðlu kökuna, þær eru rrrosalegar ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home