föstudagur, desember 1

Humm hvað skal gera?

Já, næsta helgi strax að koma. Við erum að vinna í því að finna út hagstæðustu leiðina til að flytja allann varninginn sem við erum búnar að kaupa til Íslands. Erum sem stendur í samningarviðræðum við Eimskip en skrifstofa þeirra er einmitt handan við hornið. Erum jafnvel að pæla í því að fara út á höfn með stóra ferðatösku og bíða eftir íslenskum togara, getum skipst á að taka vaktir ;)

Shjitt! er að horfa á þátt um fræga fólkið, rosalega er Jude Law sætur. En jæja við vorum reyndar að horfa á einn voðalegan hönk í bíó í gær, fórum á nýju Bond myndina og sjáum ekki eftir því ;)

Ég var allan daginn í dag á akút hluta QE II spítalans sem kallast Halifax Infurmatory. Þar var ég að vinna með sjúkraþjálfara sem sér um spinal cord injury og hverslags mein í mænu og heila. Stuttur dagur á morgun. Búnar á hádegi. Verkjaskólinn er á morgun og fyrsti sundlaugartíminn með þeim. Svo er stefnan tekin á góða skvass lotu og svo þarf að plana helgina, ef það verða áframhaldandi hlýindi er aldrei að vita nema við skreppum aftur á bretti.

Búnar að komast að því að Blowers street er gatan okkar hérna í miðbæ Halifax. Þar er að finna Mountain Equipment búðina, skeitarabúðina þar sem við keyptum hjólabrettin. Mjög flotta stelpufatabúð, surfbúðina þar sem við fengum kennsluna og brettin og svo viti menn, jú subway er líka á þessari litlu götu.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

var í jólaföndri með stelpunum í vinnunni í gærkveldi.Mikið srafað og mikið hlegið og föndrað pínulítið!!Pabbi kom frá Frakklandi í nótt og strax í vinnuna í morgun. Er í fríi í dag og er að baka speltbrauðið mitt.
Hér eru margir búnir að setja út jólaseríur og búið að skreyta miðbæinn. Hvernig er þetta í Halifax!!

11:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já pabbi bjallaði á mig í gærkveld. Var ánægður með ferðina þó svo að þetta hafi verið vinnuferð, alltaf gaman í kíkja í Alpana ;)

Hérna í miðbænum eru fyrst og fremst verslunargöturnar skreyttar, húsin eru ekki mikið skreytt. Þegar maður kemur svo í úthverfin þar sem einbýlishúsin eru sjáum við mikið skreytt hús ;) fólk er líka meira að skreyta sjálfa sig eins og margar hjúkkurnar eru með jólatrés eyrnalokka og snjókallanælur og svo framvegins.

12:45 e.h.  
Blogger Guggan said...

Smart.

2:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home