Island er best
Jólin eru búin að standa fyrir sínu að þessu sinni. Það eina sem vantar er náttúrulega snjórinn og þá sérstaklega upp í Heiðmörk. Þar er nefnilega gönguskíðadraumaland. En jæja, ég er víst komin með leiðindahálsbólgu sem er aðeins að rugla plönunum hjá mér, langaði að skella mér í blak í kvöld en veit ekki hvernig það fer. Ætli ég fari ekki bara að sauma, sniff, sniff.
Ps. Gugga siz loksins komin með netið í nýju íbúðina, til hamingju, þarf reyndar ekki lengur að tala við þig á skype, get bara skroppið yfir til þín, sem er kostur, aha.
Það er bæthe way ekkert smá gott að vera komin heim, Ísland er besta land í heimi ;)

1 Comments:
já það er sko allavega betra eftir að þú komst heim:)
Skrifa ummæli
<< Home