Jólahúsið

Piparkökuhúsið er risið. Já þvílíkt verkfræðiundur, við Elín erum farnar að velta því fyrir okkur hvort við séum yfirleitt á réttri braut með því að vera í sjúkraþjálfun ;)
Ps. Ég var að komast að því að um daginn þegar ég var að fylgjast með bæklunarlækninum þá var ég í raun að fylgjast með lítalækni að störfum, við Elín hlógum dátt þegar við komumst að þessu. Það útskýrir e.t.v. öll rosalegu sárinn sem hann var að vinna með og já alla útlitslítina sem hann var að laga ;) en hann var jú líka að setja inn gervi PIP liði, það var e.t.v. það sem ruglaði mig og amputera tær o.s.frv. ;) Ég átti víst að hitta sjúkraþjálfara sem mundi fylgja mér til rétts læknis, í staðinn labbaði ég inn á kliníkið sem ég hélt að væri á bæklunarsviði, talaði við fyrsta manninn í hvíta sloppnum sem ég fann og sagðist vera sjúkraþjálfunarnema komin til að fylgjast með honum að störfum. Allavega tók hann vel í það og áttum við góðan dag saman ;)

2 Comments:
Mögnuð bygging! Framúrskarandi framkvæmd!
Ég segi nú ekki annað.
Eða jú, farðu nú að koma heim til mín.
AB
Ég er í vinnunni er með gemsann.Hringdu í mig í dag.Allt verður í lagi.Hlakka til að sjá þig elsku Unnur mín.Þín Mamma.
Skrifa ummæli
<< Home