sunnudagur, desember 3

Sigling og break


Já í morgun var stefnan tekin á siglingu yfir til Dartmouth, kostar það sama og taka strætó. Get ekki sagt að það hafi verið mikið í boði í Dartmouth, það eina jákvæða við þessa borg er klifurhúsið. Já það kemur sér vel að Tim Hortons, kaffibúðin er allstaðar og gripum við með okkur heitt te enda íssssakuldi úti núna, burrr.


Elín horfir yfir til Halifax, takið eftir nýju úlpunni, geggjað flott.


Já stoppið var stutt í Dartmouth, enda lítið að sjá. Því var ferðinni heitið aftur yfir í betri hluta borgarinnar.


Já eftir skemmtilegu ferðinna yfir til Dartmouth var haldið í break danstíma. Elín er hérna að negla eina stöðuna. Þessi staða kallast "The chair". Athuga! mikið álag á metacarpal liðinn.


Kennarinn okkar, Igor, sýnir okkur mismunandi útfærslur af "the chair", sleppa fótum og snúa í hringi með því að halda í hönd félaga, allt mjög skemmtilegt en líka mjög erfitt.


Svo fengum við að sjá allskyns trix sem við getum sem stendur einungis dreymt um að gera ;) alltaf gaman að sjá þau samt.

Já en dagurinn er bara hálfnaður, svitnuðum ekki alveg nógu mikið núna í break tímanum og ætlum við því að kíkja í smá skvass session. Pís out.

3 Comments:

Blogger AB said...

Þið eruð aðeins of sætar á efstu myndinni.

AB

4:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gugga: var að sjá myndirnar af nýju íbúðinni, lítur ekkert smá vel út, flott gluggatjöldin í stofunni. Hlakka til að kíkja á hana um jólin.

9:23 e.h.  
Blogger Guggan said...

já, hún er bara fallegasta íbúðin í allri Reykjavík....ég hlakka ekkert smá til að fá þig heim!

7:51 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home