föstudagur, desember 1

Óhefðbundið

Það er svo gaman að vera stöðugt að læra nýja hluti. Og það er gaman að vita til þess að maður mun alltaf halda áfram að læra.

Einn af kennurum okkar hérna úti hefur valið sér áhugaverða "leið" innan sjúkraþjálfunar krónískra verkjasjúklinga. Þetta er nokkurskonar óhefðbundin leið.

Í fyrsta lagi vinnur hún mikið með öndunina, þannig að oft snúast fyrstu tímarnir hennar bara um að kenna rétta öndun sem getur tekið langan, langan tíma. Það er alltof lítil áhersla á öndun í íslenskri sjúkraþjálfun. Hvað öndum við oft yfir sólarhringinn? jú mörg þúsund sinnum. Það þarf ekki mikið til að við förum að breyta öndunarmunstri okkar, verkur, stress o.s.frv.

Hún leggur mikla áherslu á að tengja saman, spirit, body and mind. Þetta þarf allt að flæða sem ein heild til að einstaklingur nái bata og til að vera (ú þetta var djúpt ;). Þannig biður hún sjúllana sína oft um að fara aftur í huganum til þess tíma þar sem tiltekinn hlutur átti sér stað, t.d. slys eða fyrsta upplifun verkjar. Ef viðkomandi hefur upplifað hræðslu á þeim tímapunkti þá á hann að hugsa um annað atvik sem veldur hræðslu og læra að beina öndunartækninni og æfingum til að vinna úr hræðslunni.

Í dag fórum við í sundlaugartíma með henni ásamt króníska verkjahópnum okkar. Hún tók okkur í smá sérkennslu, í raun meðferð eftir tímann. Við lágum láréttar í vatninu með flot undir höfuðið og mjaðmirnar, mjög þægilegt. Fyrst bað hún okkur um að slaka á sjálfar. Hún þrýsti svo á mismunandi staði í brjóstkassanum og hreyfði okkur til svo hún gæti fundið hvort við værum stífar og leiðbeindi önduninni um leið. Þannig gátum við sjálfar fundið að þegar við önduðum rétt losnuðum við upp í brjóstkassanum, sérstök tilfinning, allt í einu var maður eins og tuskudúkka sem hún gat hreyft, beygt og sveigt. Ég komst að því að ástæðan fyrir því að ég er stíf í brjóstbakinu eru ekki liðirnir heldur vöðvastífleiki, aha, getum líka séð það á bekk með öllum sérhæfðu MT prófunum, skemmtileg tilbreyting að sjá það á þennan hátt.

Já hún ætlar líka að kenna okkur að þreyfa þindina og meta stöðuna á henni. Held að hún ætli að kenna okkur líka smá che cong (veit ekki alveg hvernig þetta er skrifað) en eftir streytumikla daga finnst henni gott að stunda þessa leikfimi. Já það er svo gaman að læra ;)


Ein mynd í lokin af hjólabrettaaðstöðunni hérna úti.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home