Myndatími

Uppáhalds perlusalinn minn er oftast á laugardögum út á horni að selja ódýrar perlur.

Fyrir utan Rehabilitation Center.

Var að opna nýtt kaffihús beint á móti íbúðinni okkar. Alltaf þegar við opnum gluggann á kósí litla herberginu okkar streymir kaffilyktin inn. Mér finnst kaffilykt mjög góð en aftur á móti drekki ég ekki þennan drykk. Það kemur sér því vel að þetta kaffihús býður upp á eitt besta te sem ég hef smakkað, blanda af grænute og vanillu, jammí :)

Já Farmers market var heimsóttur, enda laugardagsmorgun. Nú erum við farnar að þekkja svo marga hérna og því gaman að kíkja á markaðinn og chjatta við fólkið.

Kvöldmaturinn um daginn, ekki alveg sá hollasti en mjög góður engu að síður ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home