Íslenskukennsla
Síðasti vinnudagurinn var ljúfur. Verkjahópurinn var í þvílíku stuði í dag, enda síðasti dagurinn þeirra. Við dönsuðum að sjálfsögðu afródansinn fyrir hópinn, gekk bara mjög vel og allir voru voða hrifnir.
Við kenndum hópnum tvö íslensk orð, kynfæri og naflakusk. Það er ástæða fyrir því að þessi orð voru valin, trúið mér ;) Í fyrsta lagi var kynfræðslutíminn í hópnum í dag, hvaða stellingar eru ákjósanlegar fyrir fólk með króníska verki. Þá vildu þau endilega vita hvernig genetals væri sagt á íslensku, þannig að þá fór fyrsta orðið upp á töflu. Í seinna skiptið þá vorum við að sýna hópnum nokkur hjálpartæki, ekki kynlífshjálpartæki þó ;) heldur sokkaífæru. Þá þurfti einn að fara úr sokknum til að prófa og þá kom sokkakusk á gólfið. Þau hafa víst sérstakt orð yfir þetta kusk og ég sagði þeim að við ættum ekkert sérstakt orð fyrir þetta en við ættum orð yfir kusk í naflanum og þar með fór seinna orðið upp á töfluna, naflakusk. Já þannig var það, þessi orð voru sum sé ekki valin að handahófi.
Við fengum svo mikið af gjöfum í dag. Í fyrsta lagi fengum við stjörnukertastjaka í jólasokkinn okkar. Við fengum lindorf súkkulaði, jammí, Tim Hortons gjafamiða, penna og jólastjörnu ;)
Í kvöld skelltum við okkur svo í afródansinn, Andree kennarinn okkar kom með. Hún skemmti sér konunglega og ætlar að halda áfram að mæta í tímana eftir áramót og draga sálfræðinemann úr pain group með sér. Það var aðeins of mikið að loðnum handakrikum á staðnum fyrir okkur Elínu en þetta er voða mikil hippastemming, allir voða frjálsir og miklir vinir sem er nú bara gott og blessað.

2 Comments:
Elsku Unnur! Nú styttist í að þú komir heim, við erum undur ánægð með það. Þá verða allir búnir að þurrka sitt naflakusk. Andri er duglegur að halda öllu í skorðum á heimilinu. Ekki víst að hann sé duglegur að elda. En hann saknar þín ógurlega. Og það gerum við líka Kv.Jóna Hrönn tengdó
Já ég er farin að hlakka mikið til að sjá ykkur. Það mun svo koma í ljós hvort heimilið verið í skorðum eftir að ég kem heim ;)
Skrifa ummæli
<< Home