fimmtudagur, desember 7

100% Raki

Þetta veður hérna í Halifax er stórfurðulegt, í gær var -13°C og í dag er +7°C. Ég fór með pakka sem ég er að senda heim til pabba í dag. Þurfti að rölta með hann upp á pósthúsið, 10 mín fjarlægð. Allt í einu kom ein mesta rignin sem ég hef upplifað, rains cats and dogs (held að þetta sé orðatiltæki hérna). Ég hljóp því með pakkann, 9kg, í einum spreng upp í pósthúsið. Þegar ég kom þangað var eins og ég hefði skellt mér í öllum fötunum í eina væna og góða sturtu með pakkann með mér ;) Já en ég fékk nú nýjan pappir yfir pakkann og hann mun koma til íslands með skipi eftir 4 vikur, allt of dýrt að senda hann með flugi. Þannig að pabbi getur víst ekki gert almennilega við hjólið fyrr en eftir mánuð ;)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl kæra Unnur mín.
Þaka þér fyrir að berjast í rigningunni með minn langþráðr hjólaviðgerðarstand. Þetta áhald sem ég hef þráð til að geta gert við hjólið í réttum líkamsstellingum.
Já svona eigum við að fagna því að dveljast þar sem tilbrigði nátúruaflanna er snögg og óútreiknanleg. Það gefur okkur tækifæri til að eignast skemmtilegar endurminnigar, sérstaklega þegar við tökum þeim á jákvæðan hátt eins og þú gerir.
Og nú í frmtíðinni þegar ég verð að gera við hjólið á viðgerðarstandindinum hugsa ég til þess að hún Unnur mín þurfti að hlaupa í gegnum "hunda og katta rigningu" til þess að koma honum til mín og hafa bara gaman af því.

9:51 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home