Dr. þetta og Dr. hitt
Í dag fylgdist ég með tveimur læknum að störfum og var þeim innan handar. Fyrir hádegi þá fylgdist ég með Dr. Ken (ánægð með nafnið, hahaha, hefði alveg getað verið barby dúkka, lítill, nettur og fríður). Dr. Ken er læknir á verkjasviði og var ég að fylgjast með honum skoða tvo nýja sjúlla. Annar þeirra var með mjög áhugaverða diagnosu sem Dr. Ken þurfti meira að segja að googla ;) Annars snérist þetta mikið um að finna réttu verkjalyfin og alltaf þegar hann talaði um hin ýmslu lyf við mig setti ég upp "já ég veit hvað þú ert að tala um" svipinn og kinkaði kolli.
Já það var fínasta reynsla að fylgjast með honum og eftir að hafa þakkað fyrir teið sem hann bauð mér upp á skaust ég yfir í Halifax Informatory til að hitta næsta lækni sem ég átti að fylgjast með. Þessa var langt frá því að vera barbídúkkulegur, hann var gamall, stór með ýstru. Þessi læknir er bæklunarlænknir, held að hann sé sérhæfður í handarskurðlækningum. Á að vera kominn á eftirlaun en ætlar að hætta eftir eitt ár. Ég komst að því fljótlega að þetta var hinn mesti snillingur. Leist reyndar ekki á það þegar hann byrjaði spurningarflóðið yfir fyrsta sjúllanum, hef komist að því að hraðaspurningar eru ekki mitt fag, hvað þá þegar maður þarf að svara þeim á ensku. En allavega þá virtist hann þekkja alla sjúllana og knúsaði þá og kyssti þegar hann kvaddi. Einn þeirra gaf honum meira að segja jólakort og bauð honum í skemmtisiglingu á bátnum sínum. Í lok dags var ég nokkuð sátt enda búin að sjá fullt af mjög spennandi tilfellum. Ég fékk líka eitt knús áður en ég hélt heim á leið ;)
Það kyngdi niður snjó í dag og hef ég sjaldan séð eins þétta snjókomu. Við Elín röltum heim á leið í snjónum og tókum nokkrar jólamyndir ;) Já svo er okkur Elínu boðið í partý sem bæklunarskurðlæknarnir og plastic surgery læknarnir eru að halda næsta föst, ætlum að sjá til með það ;)

3 Comments:
Þetta er greinilega soldið spes búð sem þú stendur fyrir framan...
Ja, kollum hana bleiku budina, selur notud fot og haegt ad kaupa fullt af bleiku stuffi. Elin keypti ser meira ad segja bleikar gallabuxur, otrulegt en satt :)
Ofsalega sætar og jólalegar myndir.Það er allt svo fallegt í nýföllnum snjó. Við pabbi erum að fara í matarboð á Sigga Hall út af bjartsæynisverðlaunum Alcan, sem voru veitt í dag Herði Áskelssyni í Hallgrímskirkju.Þetta verður algert gúrmei.Ég er að fitna af öllum þessum matarboðum og borðvínum með!! Ástarkveðjur.
Skrifa ummæli
<< Home