þriðjudagur, desember 12

Happadrættisvinningur og jólasokkar

Já viti menn, haldiði ekki að Elín hafi unnið í happadrættinu, kemur ekki á óvart :) Við vorum farnar úr þessari mjög svo glæstu veislu þegar nafnið hennar Elínar var dregið upp úr pottinum. Manneskjan sem stjórnaði happadrættinu átti víst í hinu mesta basli með þetta allt saman enda hafði Elín samviskusamlega skrifað fullt nafn á miðann. En pakkinn komst til skyla og beið Elínar á skrifborðinu hennar í vinnunni. Inn í pakkanum var Kanadíski-her-vasahnífurinn og einangrunar krús fyrir teið, já teið því við Elín erum farnar að drekka grænt te í massavís.

Já það er jólasokkavika í vinnunni. Þá koma allir með jólasokk og hengja upp á skrifstofunni, "secret santa week". Svo er dregið um hver er jólasveinn hvers. Við Elín erum með sameiginlegan sokk sem kennararnir okkar þrír skiptast á að færa gjafir í, í dag fengum við hjartahálsmen. Við aftur á móti þurfum ekki að vera jólasveinar, við erum svo dekraðar hérna úti ;)

Ps. Við erum að verða rrrrosalegar í skvassi enda fórum við fimm sinnum í síðustu viku og erum nú þegar búnar að fara tvisvar í þessari, vikan okkar byrjar sko á sunnudegi ;) Held að stefnan sé tekin á íslandsmótið.

3 Comments:

Blogger AB said...

Farðu nú að koma heim, ég nenni þessu ekki lengur.

AB

3:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

;)

4:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elín.. þessi heppni er farin að skelfa mig. Beint í víkingalottóið þegar þú kemur heim :)

6:24 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home